Sá einstaklingur sem safnaði mestu var Viktor Snær Sigurðsson en hann hljóp líkt og síðustu tvö ár fyrir systur sína og AHC samtökin. Hann safnaði rúmum 1,6 milljónum króna en aldrei áður hefur einstaklingur safnað jafn miklu í áheitasöfnuninni.
Þá safnaði Bjarný Þorvarðardóttir 1,3 milljónum króna til handa Mænuskaðastofnun Íslands.
Að lokum fékk Ína Ólöf Sigurðardóttir viðurkenningu fyrir að hafa safnað 1,2 milljónum króna og einnig fyrir að hafa fengið flest áheit eða 322 talsins. Ína hljóp fyrir Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, og tileinkaði Árna Sigurðssyni, eiginmanni sínum, hlaupið en hann hefur barist við heilaæxli síðustu 2 ár.
Árni hélt einnig ræðu þar sem hann fór yfir sögu sína og lýsti því hvaða áhrif veikindin hafa haft á líf hans og fjölskyldunnar. Hann þakkaði fjölskyldu og vinum fyrir stuðninginn en þau tóku sig saman og mynduðu heilt hlaupalið sem hljóp undir kjörorðunum Áfram Árni – Við berjumst með þér, segir í tilkynningu frá Íslandsbanka.
AHC samtökin afhentu Viktori Snæ sérstakan verðlaunaplatta fyrir afrekið til þess að sýna þakklæti í verki.
Meira um uppskeruhátíðina HÉRNA